maggi270....
13.09.2005 16:56:41 / maggi270

lókaL party 21.aldarinnar...

bubble bubble.....

Jæja þá er maður loksins að ná sér eftir mjög vel heppnað lokalkvöld sem haldið var í Hlégarði á laugardaginn var. Mjög góð stemming og mikil drykkja myndaðist en við hófum daginn á því að skreyta  hlégarð með klósettpappír og blöðrum sem var vel við hæfi, svo var flaggað lokal fánanum til fulls. Húsið síðan opnað um 9 og fólk streymdi allstaðar að úr bænum og voru ansi margir klassa bæjarbúr mættir þarna sem maður hafði ekki séð ansi lengi. þetta var bara algjör næssari í alla staði og bíður maður því bara spenntur eftir næsta lokal party sem verður sennilega í nóvember eða einhvað..  en ég setti nokrar myndir inn frá þessu sem tala sínu máli..en svona fyrir þá sem mættu ekki þeir geta nú alveg iðrast þess til æfiloka mín vegna.. því þetta var crazzy ...

Hosted by Tinypic.com  Hosted by Tinypic.com  Hosted by Tinypic.com 

óvenjulegum skreytingum var hent utan um Hlégarð svo það færi nú ekki á milli mála hvar fjörið yrði, klósettrúlan þraukaði í smá tíma á trjánum en svo fór að rigna samt mjög fancy....

Hosted by Tinypic.com

Þegar búið var að skreyta Hlégarð all verulega, dreif maður sig í glansgallann og hóf drykkju af fyrstu gráðu...

Hosted by Tinypic.com

mosfellskir ógæfumenn á góðri stundu búnir að kasta ófáum kokteilum í andlitið á sér :$ .       heeeeeee...$$$

Hosted by Tinypic.com

 Guðfaðirinn Steindi senior sjálfur mætti og dreifði klámvísum í mannskapinn sem féll miss vel í fólk. Seniorinn klikkar ekki á lokal kvöldum enda á hann týnda syni víða ??

Hosted by Tinypic.com  

Lokal og bleikir bolir öss... það þýðir ekkert annað enda er meiri hlutinn að liðsmönnum blaðsins hálf samkynhneigðir eða einhvað þaðan á verra samt mjög næss team sko....

Hljómsveitin Hljómur fór á kostum og máti sjá eldri konur kasta súrum  undirfötum í þá félaga sem þeim fannst nú ekki slæmt...

       

Hosted by Tinypic.com

Liðsmenn lokal voru líka ornir nokuð góðir á því þar sem bjórinn var á svo hagstæðu verði sem gerði það að verkum að þeir voru óneitanlega hálf bleikir í framan...??

    Hosted by Tinypic.com   Hosted by Tinypic.com

Þegar dna og delux tróðu svo upp virtist allt ættla að fara úr böndunum menn hreinlega rifu sig úr að ofan og sumir jafnvel að neðann líka, og hristu síðann líkamann all verulega með. hápunkturinn af þessu öllu var svo sennilega þegar þeir tóku mosolagið víðfræga sem var nú vel við hæfi þarna í þessari sveitastemingu sem verður náturlega bara til í moso en ekki hvað....

Hosted by Tinypic.com

Dansgólfið var þétt setið og hefðu tæplega komist mikið fleiri inn í Hlégarð á tímabili. Blóð sviti og tár streymdi um gólfið sem myndaði skemtilegan keim.... össsss....

Hosted by Tinypic.com

svo er það bara spurningin  hvort  þetta sé virkilega næss gaur eða hvort  það sé bara bleiki bolurinn sem haldi honum uppi??  tja...  hummm... heeee

       

www.internet.is/lokal

maggi270 gengur bara í bleiku.....


» 3 hafa sagt sína skoðun

05.09.2005 22:30:27 / maggi270

haaaa... party

 

 

Lokal party verður haldið í Hlégarði  föstudaginn 10.sept vegna útgáfu nýasta blaðsins, drykkju læti við hæfi Himmi Gunn og Gústi Linn með kassagítarstemingu, síðan Dóri Dna og Danni delux með rímnalæti og að lokum Dj Geiri Slææ.. össs mjög næss, bjór á 350 kjel hhaaaaa.....


» 2 hafa sagt sína skoðun

15.08.2005 22:09:10 / maggi270

tjald + landi = RIP

Jæja fórum í eina góða útilegu núna á föstudaginn sem var það rosaleg að ég ákvað nú bara að hætta að dreka eftir þessa subulegu útilegu sem má segja  í fá einum orðum að hafi verið mjög góð þrátt fyrir að við höfuðum verið all flest vel yfir eðlilegum ölfunar mörkum...

 

* Við mætum í fyrst sem rólegir skátar á svæðið en enduðum svo sem ofurölfaðir unglinaR sem voru búnir að missa allt niðrum sig, eða hvað er maður annars lengi unglingur...

* en Dalvíkur Danni var allavegan maðurinn, þótt að það hafi engin þekkt hann í fyrstu þá kunni hann sko á gítarinn sem var síðan held ég brendur???

* Steini JR minnst þess ekkert að hafa verið í þessari útilegu að sökum landaskota sem voru neydd ofan í hann, að hans sögn..

* Andri Þ henti ölum vinnu fötunum sínum á eldinn sem brunnu nú bara nokkuð vel.. en  er ekki víst að hann hafi mætt í vinnu í morgunn

* Menn voru ógeð í alla staði ;(

* Toggi náði að búa til slagsmál við rólegasta gaurinn á svæðinu...?

* Óli var farinn að dansa stríðsdansa um tíuleitið ber að ofan,

* Það var allt brennt sem hægt var að brena á þessu blessaða báli...

* ég mann voðalega lítið meira eftir þessu rugli nema það að við enduðum síðan í bænum éða einhvað og þar var svo drukkið meira bús,úfff hvað er síminn hjá sáá ég er hættur humm....

 

 

....össs þetta var nú samt næss en  mjög ófagleg drykkja að stóru leiti sem lýsti sér hjá ymsum aðilum í minnisleysi, ælu og ótímabærum svefni auk margra varanlegra sálarskaða, ég  held að ég bíði bara með næstu svona útilegu þar til næsta sumar eða einhvað...

maggi270 með grasgrænu í hárinu


» 6 hafa sagt sína skoðun

09.08.2005 02:51:11 / maggi270

myndiR frá köben....

Var að setja inn nýjar myndir frá köben hér til hliðar á síðunni...


» 2 hafa sagt sína skoðun

06.08.2005 13:49:19 / maggi270

íslenskuR Sinatra ???

Ég verð nú bara að deila þessu, ég var að vinna í gær hérna á Hótel Flúðum sem er nú ekki frásögu færandi nema hvað að Geir nokkur Ólafsson mætti í mat, maður sem segir sjálfur að hann sé hinn íslenski Frank Sinatra og frekar tæpur gaur en jæja hann heimtaði að fá píanó svo hann gæti sungið fyrir gestina, en til allra hamingju var nú ekkert pianó á staðnum, En allt í lagi með það. Svo var það í morgun þar sem ég var bara svona að byrja að vinna ný vaknaður og átti ekki von á neinu rosalegu nema hvað að Geir sjálfur mætti inn í eldhús til að þakka mér fyrir matinn og vill endilega fá að singja fyrir mig??? og áður en ég næ að átta mig á því hvað væri eiginlega í gangi fer kauðinn að singja þessa líka rosalegu óperu bara fyrir mig, mér til mikilar skelfingar vissi ekki hvort ég ætti að hlæa eða gráta. ég vissi að þessi maður væri tæpur en ekki alveg svona rosalega, svo þegar hann var að fara þá hrópaði hann stoltur það toppar eingin tenórinn Geir Ólafss.. what....? hvað meinti hann?? var hann að grínast eða??ég stóð bara þarna stjarfur eins og mér hefði verið nauðgað eða einhvað þaðan af verra, og þurfti eiginlega að endurskoða líf mitt eftir þetta haaa....

Veit ekki hvort Frank Sinatra sjálfur yrði ánægður að vita að einhver faggi á íslandi sé að líkja sér við hann, humm...

maggi270 með fína og fræga fólkinu....


» 1 hafa sagt sína skoðun

04.08.2005 14:25:33 / maggi270

versló2005

+ = 

hóf helgina á fimmtudag með því að leggja af stað hringinn um landið gistum fyrstu nóttina í skaftafelli en þar var allt fullt af allra þjóða túristum, mjög næss veður og lá leiðin þaðan til hafnar í hornafyrði stoppuðum við jökulsáralónið sem er klárlega flottasti staður á íslandi..... 

  

þegar við komum á Höfn sem er algert krumaskurð ákváðum við að halda áfram til Neskaupstasðar sem er austast á landinu þurftum að keyra í gegnum mjög tæp bæjarfélög sem ætti í raun að vera löngu búið að leggja niður, til að komast á neskaupstað þurftum við að keyra stærstu og bröttustu breku sem ég hef keyrt upp á og voru göng efst á fjallinu sem voru svo þrang að ég myndi hugsa mig tvisvar um áður en ég færi í þau aftur....

en jæja mætum á þetta svokallaða neistaflug á föstudeginum tilbúinn í brekkusöng og hópdrykkju.. en komumst þá að því að fjörið byrjar ekkert fyrir en á laugardaginn..hummm  mjög súrt eina fólkið sem ég sá þar á ferð voru mjög drukknir og frekar erfiðir unglingar úr smábæ.. þanig að leiðinn lá bara upp á hótel eftir þessa rosalegustu útihátið austursins...

???

svo lögðum við af stað til egilstaða á laugardaginn og varð ég nú fyrir talsverðum vonbrigðum með þann bæ hélt að þetta væri nú höfðborg austurlands en þar var ekkert í boði nema tommaborgara og hallormstaðarormur. leiðin lá því með snatri til akureyrar og vorum við komin þangað um sjö leitið eftir að hafa stoppað í ásbyrgi og við Detifoss..

   

þar var farið í dansskóna á og fengið sér aðeins í tána upp á hóteli síðan lá leiðin niður í bæ þar sem allt var fullt af fólki.. endaði síðan á balli með nýdönsk og var það nokkuð þétt fyrir utan það að björn jörundur söngvarinn í ný dönsk var svo fullur og ógeðslegur að hann var nánast kominn úr að ofan sem hann hefði mátt sleppa.. lögðum af stað í bæinn og ætluðum að ná flugi frá bakka um kvöldið en það var ekkert laust þanig að maður tók því bara rólega síðasta kvöldið eftir að hafa keyrt yfit 1600km á þrem dögum og var því ósköp ljúft að koma aftur í moso.... 

 ´

maggi270 um allt land....


» 3 hafa sagt sína skoðun

26.07.2005 23:43:30 / maggi270

jeg har muskle...

Copenhagen... Dk

Jæja lenti frá DK í nótt og var hálf fúlt að koma aftur heim, eftir þessa rosalegu ferð, Hún hófst á miðvikudaginn þegar ég eddi Pé ,Svava, Klara og Yrsa flugum um fimm leitið og lentum um tíu leitið að staðar tíma. við hófum drykkju í keflavík af kappi og var markmið sett að klára opal flösku sem ég keypti í fríhöfninn áður en við lentum sem tókst nú að sjálfsögðu og gott betur en það. Þegar við komum upp á hótel var það fyrsta sem Svava gerði að missa einn líter af rommi í lobbyið sem var mjög vinsælt meðal starfsmanna.en þótti samt nokuð röff, þetta  kvöld enduðum við á eitthverri krá sem var á lestarstöðinn og vorum við bara með einhverjum norðmönnum og áströlum. sem voru nánast orðnir eins og æsku vinir okkar.. eftir það enduðum við í einhverjum úthverfum við cristjaniu og vorum við á pub sem var það tæpur að það var ekki einu sinni  rafmagn á honum bara kertaljós, en hafði þó nóg af ógæfufólki þar á meðal grænlenska drykkju konu um sextugt sem var alltaf að reyna að bjóð mér í dans.

strákarnir komu á fimmtudeiginnum og jókst þá drykjann allverulega, við fóru í öll mestu subbuhverfin í köben og höguðum okkur þar eins og  við hefðu alist þar upp, sem maður mundi nú senilega ekki gera edrú en þar hittu við fullt af mjög tæpu fólki sem átti sér enga framtíð, og þar á meðal krakkfíkla og vændiskonu sem reindi að selja okkur blíðu sína  og fór ég þá að spyrja hana hvað hún væri eiginlega að gera við líf sitt, ég  held nú að hún hafi snúið sér úr vændinu eftrir þessa predikun og sé farinn að selja bækur eða einhvað..

þegar ég kom upp á hótel eftir djammið einn morgunninn lá sjónvarp og farangur um alla götu, ég hélt í fyrstu að einhver af strákunum væri búinn að missa vitið en það var þá eitthver hótel gestur sem hafði víst snappað og hent öllu dótinu sínu út um gluggann, ég veit nú ekki hvort að við höfum haft þessi slæmu áhrif á manninn, en hann hefur mjög sennilega verið mjög veikur á geði??? 

eitt kvöldið fór ég og steindi Jr með einhverjum leigubíl sem við báðum að skutla okkur í miðbæinn og var hann mjög hress og góður á því við okkur en var samt bara að svíkja okkur því hann fór með okkur í einhvert úthverfi sem við eigum aldrei eftir að komast að  hvar var,  því þar var ekkert fólk sjáanlegt og engir legubílar, en loks náðum við taxa og var það ekki fyrir en um fjögurleitið. .Þaðan lá leiðinn í íslendingaparty þar sem við vorum til morguns... 

þegar við lentum svo loks á íslandi þurftum við að hanga inn í vélinni í hálftíma vegna þess að það var ekki hægt að oppna hurðinna, hvað er nú það?? en þetta var klassa ferð í alla staði og væri ég tilbúinn að leggja allt undir fyrir aðra ferð eins og þessa á næstunni. Og væri maður nú bara alveg til í að búa þarna í kúbenhagen........

ath ég á eftir að setja inn fleiri myndir, þetta eru myndir frá dj slææ...

 

 

maggi270 kominn í dönsku konunngs fjölskilduna


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.07.2005 13:42:47 / maggi270

......

Snoop dogg...

þrátt fyrir að hafa nánst verið búinn að gefa upp vonina á því að sjá snoop í gær þar sem ég var búinn að reyna allt til að redda nér fríi sem bar gekk ekki. Varð ég fyrir því láni að vera búinn að vinna aðeins fyrr en gengur og gerist í sveitinn, ákvað ég því að bruna beint í bæinn frá flúðum en klukkan var orðin 9 og húsið oppnað kl 6 en ég ákvað að taka þá áhætu og sjá þá kansgi restina af tónleikonum með kapanum.ég skelti bíldrusluni í þriðjahundraðið og tók beina stefnu á egillshöll þrátt fyrir að bíldruslan væri nánast að gefa upp öndina á selfossi. Þá komst ég loks á leiðarenda og var ég kominn þangað um tíu leitið. Þá heyrði ég að snoop væri klukkutíma of sein á sviðið þanig að hæsta hendin var en þá að spila þegar ég kom í hús mér til mikilar ánægu.. þar næst kom hundurinn sjálfur á svið og virtis þakið ætla að rifna af húsinu af stemara.. þetta voru rosalegir tónleikarí alla staði og mjög góð skemtunn...****

maggi270.....


» 2 hafa sagt sína skoðun

12.07.2005 01:26:35 / maggi270

kóngsins köben... heeee

Var að kaupa mér miða til Copenhagen DK í þessum töluðu.  þannig að nú fara hlutirnir að gerast. Fer út núna 20. næstkomandi og eru því ekki nema 8 dagar í herlegheitin. hópurinn sem ég fer með er ekki af verri endanum, en þar má t.d finna fólk á borð við steinda jr. son siggu og steinda í Múlanum, Svövu sem kennd er við dalinn, klöru og Yrsu  sem margir tengja við undirheima Garðabæar og að lokum Dóri DNA sem gerði garðinn frægann með Rokklingunum á sínum tíma. En það er nú samt vísara að haga sér siðsamlega þarna í danaveldi því ekki vil maður dúsa í geimslum Margrétar drottningar sem er víst mjög drykkfeld stórreykingar kona og ekki væri gott að enda með  henni á trúnó eftir slæman dag á strikinu hummm...

 

   

maggi270 myndi gera allt fyrir þessa hafmeyju....


» 6 hafa sagt sína skoðun

11.07.2005 16:55:48 / maggi270

hummm....

þetta var nú meiri helgin...hummm? nú þegar maður ætlaði sko að bæta það upp að maður hefði verið að vinna alla síðustu helgi og gera það með stæl og hóf maður það með léttri drykkju. ég eddi pé og drési skate fórum í bæinn um eitt leitið og byrjaði fjörið ágætlega en þegar það fór að líða á kvöldið fór ógæfan að snúst okkur í hag. Ég og eddi voru staddir fyrir utan gaukinn þar sem einhver hópslagsmál áttu sér stað. Og þegar löggan mættir á svæðið er það fyrsta sem þeir taka upp  á er að smúla pipar úða í augun  á okkur edda og sigga svarta sen var reyndar að slást. En ég veit ekki til þess að ég og eddi hafi verið að slást en allavegana stóðum við þarna staur blindir og ógeðslegir og fengum aðstoð við að skola þetta helvíti úr tríninu á okkur og sagði einhver lögga mér það að þetta væri í hálftíma að jafna sig og þetta væri nú bara hressandi fyrir unga pilta. En að lokum eftir piparfjör fór maður loksins að sjá og gat maður því farið að skemmta sér á ný en maður fan nú samt smá pipar keim allt kvöldið sem var mjög hressandi  krydd í tilverunna. Daginn eftir var DV síðan farið að reina að hringja í mig vegna löggumálsins og úðans en ég hafði nú ekki mikin áhuga á að birtast þar sem einhver faggi með piparhjúp í andlitinu....

ég mæli samt með því að fólk prófi að mylji grófan pipar og strái honum í augun á sér það er bara næsss...

maggi270 maðurinn sem yfirvöldin öfunda....


» 2 hafa sagt sína skoðun

01.07.2005 16:52:56 / maggi270

duran ....

ég fór nú á hvorki meira né minna en  Duran duran tónleika í gærkvöldi og var það naumlega sagt rosalegt haaaa.., gömlu goðin mætt í allri sinni dýrð og klassa lögin komu hvert á fætur öðru. Maður skelti sér í gamla 80´s galan og hellti nokkrum köldum rússum í sig fyrir herleg heitin, og var maður því orðinn nokuð góður á því þegar að stóru stundinni loksins kom. En  þar sem maður verður nú að öllum líkindu rólegur  þessa helgi þar sem þetta mun heita vinnu helgin mín næsss..:^) og eimit þegar nánast allir lands menn liggja blind fullir úti í móa singjandi gömul íslensk þjóðlög . þá vona ég  bara að það verði rigning og skafreningur um allt land þanig að það verði nú nógu leiðinlegt hjá þessu fólki sem fer í útilegu að það neiðist bara til að fara aftur í bæinn og skríða undir sæng, en ég hefði nú samt alveg verið maður í einna góða útilegu. ég er samt ekkert bitur sko.....hummmmmm..... en jæja.,..

 

maggi270 back to the 80´s....


» 3 hafa sagt sína skoðun

19.06.2005 22:43:25 / maggi270

jigga jigga

--Jæja þá er maður búinn að að vinna í eina viku núna og er á leið í viku frí snæssari + öl = garðparty. ég lenti óvart í þeirri slæmu stöðu að detta svona svaðalega í það í gær og var það nú bara nokkuð góður pakki að undanskildu því að ég var staddur á flúðum. sem er rétt hjá selfossi. Þar sem ég þekki nú ekki marga nema kanski einn gaur sem ég er að vinna með upp á hóteli. við rúlluðum á einhvað heimaparty þar sem fólk drakk bara heimabruggaðan gammbra og gleifti munntópak eins og það fengi borgað fyrir það af gömlum sveita sið??.þaðan lá leiðin á lokal pöbbinn sem minnti nú smá á láka í moso, en ég man nú reyndar ekki hvað hann heitir kanski vegna ölfunar sem var reyndar orðin nokkur á þeim tímapunkti. þarna var mjög spes stemming fólk dansaði hringdansa á gólfinu og menn voru í bændaglímu fyrir utan þambandi óblandað heimabrugg og lá svo í götunni. Eftir þetta pöbbarölt sem bauð nú bara upp á einn pöbb, lá leiðin aftur í partyið þar sem ég komst að þeiri niðurstöðu að ég var orðinn ansi góður á því. kanski vegna þess að ég var farinn að innbyrða þó nokkuð magn af hvíta rússa og öðrum óðvera. þannig að einna vitið í stöðunnni hjá mér var að koma mér heim í háttinn og var ástandið á mér í morgunn þegar ég átti að mæta í vinnu vægast sagt ógeðslegt.. hefði betur sleft einhvað af þessum tópas skotum sem voru nú samt ansi góð en þá hefði dagurinn hjá mér kanski verið manni bjóðandi??

Samt nokkuð gott skrall og er ég orðinn mun reyndari í lífinu eftir þetta, og veit nokkurn veiginn um hvað lífið sníst eða svoleiðis.... hummmm
mæli með því að fólk fari einhvað út á land ekki með neitt í farteskinu og reyni að blanda geðinu við sveita fólkið þú færð þá bara í verst falli skóflu í andlitið..

....maggi270 ekki bara massinn


» 1 hafa sagt sína skoðun

09.06.2005 19:40:45 / maggi270

stígvélaði köturinn...

The image “http://www.stevecolgan.com/Portfolio/Red%20Boots.jpg” cannot be displayed, because it contains errors.


Ég var heima hjá steinda JR einhvað að væbblastnú fyrir stutu þegar ég ragst þar skindilega á glæ ný viking gúmístígvél sem voru en þá í kassanum. Ég hafði ekki séð svona ný stígvél í mörg ár. Og þótt það nokkuð merkileg, en þegar ég spurði kappan út í málið þóttist hann ekkert vita um þetta í fyrstu og vildi helst ekkert ræða, þetta því þetta var mjög viðkvæmt. En eftir smá ringulreið og roða í kinum:^) viðurkendi hann að hann ætti þessi boots og að hann hefði fengið þau í raun í sumargjöf frá föður ??. En þá var það stóra spurnigin sem ég spáði mikið í á þessari stundu það var það hvort það væri eðlilgt að tvítugur drengur með bílpróf sem byggi á höfuðborgara svæðinu ætti að eiga glæ ný stígvél og að vera bara nokkuð stoltur af því ??

The image “http://www.goodier.com/images/boots.gif” cannot be displayed, because it contains errors.\

» 1 hafa sagt sína skoðun

08.06.2005 16:16:37 / maggi270

bubbi er maðurinn...

Bubbi
Fréttamynd 229676

Við skelltum okkur á tónleika í gærkvöldi. Ég, eddi pé, steindi Jr og skúli lax, á 25 ára starfsafmæli Bubba Morthens. Sem haldið var í þjóðleikhúsinu þetta voru svaðalegir tónleikar í alla staði og er ekki annað hægt að segja en að Bubbi sé kóngurinn þrátt fyrir háan aldur og vott af hárleisi vegna óskipulagðra fikniefnaneislu í æsku,en þessi kappi verður aldrei toppaður.en þarna voru tekin öll helstu lögin og sá gamli bara í mjög góðum gír dansandi á sviðinu eins og blindur hundur sem væri ný sloppin úr fjósi. Eftir tónleikana settumst við niður á einum af börum borgarinnar og fengum okkuR einn kaldan til að gíra okkur niður eftir þessi ósköp. Og var þá engin annar en Gisli sjálfur marteinn sjómarpsstjarna með meiru með drykkjulæti á næsta borði við okkur á trúnó með steingrími J sigfús. Hressir náungar þrátt fyrir að vera fullir á þriðjudeigi sennilega að plana einhvað svæsið samsæri eða bara að ræða kvenamálin tja hver veit...

The image “http://blog.glennf.com/images/mt/thrust_knive.jpg” cannot be displayed, because it contains errors.

» 0 hafa sagt sína skoðun

05.06.2005 22:47:14 / maggi270

þúsunndir kilómetra á dag haaaa??

 

jæja nú maður aldeilis búinn að vera á faraldsfæti síðustu vikuna, og er kallinn búinn að fara eitthvað um 2 þúsund km eða svo á einni viku humm... það er ekki normal og getur ekki verið andlega holt, en ég sá nú samt fullt af beljum og kindum sem maður er ekkert rosalega vanur að sjá þarna í stóru höfuðborginni nema þá helst bara kannski á nelly´s um 10 leitið á sunnudögum. En ég er allavegana byrjaður að vinna á fullu á hótel flúðum , og er því að keyra yfir 200 km á dag til að fara til og frá vinnu sem er mjög hressandi, ég er nú samt með hús hérna sem ég get búið í, sofið þannig að ég þarf ekki að vera að keyra alltaf í bæinn þótt maður reyni nú að fara sem oftast. En ég fór allavegana á klaustur um síðustu helgi þar sem ég var nettur haugur, fór svo í veiði fyrir norðan á þriðjudag og skelti mér síðan á akureyri á miðvikudaginn. Var svo komin á flúðir á föstudaginn þanig að maður er nú rétt rúmlega komin með sumarkvótan af bílferðum í bili. Annas er ágæt að vera hérna flúðum þótt þessi bær lifir bara á sveppum, paprikum og öðrum óleglegum iðnaði. En það er samt líka mjög súrt að hanga hérna einn í afdölum eftir vinnu og dansa samkvæmisdansa við sjálfan sig..

en þá er það bara að fara að undirbúa næstu svæssnu útilegu þar sem ég ættla að panta það hér með að ég verð fullur allan tíman og ættla hvorki að keyra né tjalda. Bara rúlla um túnið hauslaus og alls laus í skítugri lopapeysu með landa og goslaust kók í brúsa... umm næssss....

massi.is/bbox

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4